Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur nú í baráttu fyrir gjaldfrjálsum strætókortum næsta skólaár en miklar líkur standa til þess að kortin verði niðurfelld. Fulltrúar ráðsins hafa fundað með fulltrúum borgarinnar og Strætó og hafa nú sent erindi á borgarstjórnina, ýmsa ráðherra og samgöngunefnd Alþingis svo fátt eitt sé nefnt.
Um þessar mundir stendur yfir skoðanakönnun um gjaldfrjáls strætókort sem ætlað er að meta hversu margir námsmenn myndu raunverulega nýta sér þjónustuna. Við bendum öllum stúdentum á að taka þátt en vefslóð á könnunina er eftirfarandi:
http://FreeOnlineSurveys.com/rendersurvey.asp?sid=zojw7ow4u14qitp601532
Um baráttuna fyrir frítt í strætó, hærri námslánum og fyrirhugaðan samstöðufund námsmanna verður rætt á næsta Stúdentaráðsfundi sem fram fer 10. júní kl. 17 í HT300. Athygli stúdenta er vakin á því að fundir ráðsins eru opnir öllum!