ESN Reykjavík er íslensk deild alþjóðlegra stúdentasamtaka sem hafa það meginmarkmið að hafa gaman af lífinu og kynnast náunganum. Erlendir nemar við HÍ eru hvattir til þess að ganga til liðs við samtökin því þau standa fyrir ýmsum uppákomum, hafa ódýrar veigar á sínum snærum og gera nemunum kleift að kynnast Íslandi á skemmtilegan hátt. Heimasíða félagsins erwww.esnreykjavik.com og þar má fá allar nánari upplýsingar, skoða myndir, athuga hvar annars staðar í heiminum ESN heldur úti starfsemi og svo framvegis. .
Alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs er tengiliður milli ESN Reykjavíkur, hagsmunafélags erlendra nema við HÍ og alþjóðanefndar SHÍ. Í ár er stefnt að auknu samstarfi milli ESN og SHÍ til að auka umsvif tengiliðaverkefnisins sem miðar að því að sameina íslenska og erlenda stúdenta og ætla fulltrúar Stúdentaráðs að taka virkan þátt í að skipuleggja alla viðburði með ESN svo að dagskráin verði þétt og skemmtileg fyrir erlenda nema og íslenska tengiliði þeirra.
Alþjóðafulltrúi SHÍ og tengiliður Stúdentaráðs við ESN er Eva Rós Baldursdóttir. Ef þú þarfnast aðstoðar eða ráðgjafar hennar getur þú annað hvort sent henni tölvupóst á netfangið erb4@hi.is eðaesnrvk@hi.is.
