Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Forsíða

Stúdentaráð

Stúdentaráðsliðar 2008-2009

Gabriella Unnur Kristinsdóttir

Er kempa þegar kemur að baráttunni fyrir hagsmunum stúdenta. Hún er einnig þekkt fyrir að vera skrítnasta skeiðin í skúffunni. 

Hvað ætlar þú að gera í páskafríinu?

Spurning vikunnar Sandra Mjöll Jónsdóttir, 2. ári í lífeindafræði: Ég ætla læra, æfa og borða sukkulaði.
Spurning vikunnar Auður Alfífa Ketilsdóttir, 2. ári í hagnýtri menningarmiðlun: Ég ætla til Ísafjarðar með stórfjölskildunni. Við ætlum að fara á skíði og Aldrei Fór Ég Suður.
Spurning vikunnar Filippo Ciccarelli, skiftinemi í stjórnmálafræði: Ég ætla til New York.


Printer-friendly version

Fréttir

  • HÍÍsafold - ungt fólk gegn ESB-aðild, í samstarfi við Orator, félag laganema við HÍ  boða til málfundar um ungt fólk og Evrópusambandið fimmtudaginn 11. mars næstkomandi í sal 101 á Háskólatorgi kl. 11.40-12.20

     

  • HÍEiga háskólanemendur að lifa á loftinu – Málstofa 17. mars um réttindi nemenda í sumar!
    Vissir þú að það er óvíst hvort að nemendum við Háskóla Íslands stendur til boða lánshæf sumarnámskeið í sumar?

    Vissir þú að réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta hefur verið afnuminn?

    Vissir þú að óljóst er hvort sveitafélögin veiti námsmönnum fjárhagsaðstoð yfir sumartímann þrátt fyrir framfærsluskyldu?

  • Háskóli ÍslandsLýðheilsufélag læknanema stendur fyrir Blóðgjafamánuði HÍ nú í mars 2010. Er það í annað skipti sem slíkur atburður er haldinn, í samvinnu við Vodafone og Stúdentaráð HÍ. Í þessum mánuði verða nemar við HÍ hvattir til að gefa blóð í nafni nemendafélags síns eða námsgreinar. Söfunin fer aðallega fram í Blóðbankanum, en blóðbankabíllinn kemur einnig 3. og 15. mars, þann 3. verður hann á bílastæðinu við Háskólabíó, þann 15. við Odda

Dagbók Stúdentaráðs

  • 20 weeks 2 days ago

    Á Stúdentaráðsfundi í september var tekin fyrir skýrsla sem unnin var af vinnuhópi um rafrænar kosningar til Stúdentaráðs. Farið var yfir helstu kosti og galla fyrirkomulagsins, kostnað og aðra mikilvæga þætti. Eftir dágóða umræðu var gripið til atkvæðagreiðslu þar sem allir viðstaddir fundarmenn kusu með því að hefja vinnu fyrir rafrænar kosningar til Stúdentaráðs 2010. Nú er framundan töluverð vinna við gerð kosningakerfis og undirbúning og verður spennandi að sjá niðurstöðuna eftir áramót.

  • 41 weeks 6 days ago

    Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur nú í baráttu fyrir gjaldfrjálsum strætókortum næsta skólaár en miklar líkur standa til þess að kortin verði niðurfelld. Fulltrúar ráðsins hafa fundað með fulltrúum borgarinnar og Strætó og hafa nú sent erindi á borgarstjórnina, ýmsa ráðherra og samgöngunefnd Alþingis svo fátt eitt sé nefnt.

    Um þessar mundir stendur yfir skoðanakönnun um gjaldfrjáls strætókort sem ætlað er að meta hversu margir námsmenn myndu raunverulega nýta sér þjónustuna. Við bendum öllum stúdentum á að taka þátt en vefslóð á könnunina er eftirfarandi:

    http://FreeOnlineSurveys.com/rendersurvey.asp?sid=zojw7ow4u14qitp601532

    Um baráttuna fyrir frítt í strætó, hærri námslánum og fyrirhugaðan samstöðufund námsmanna verður rætt á næsta Stúdentaráðsfundi sem fram fer 10. júní kl. 17 í HT300. Athygli stúdenta er vakin á því að fundir ráðsins eru opnir öllum!

  • 42 weeks 4 days ago

    Næsti Stúdentaráðsfundur verður mánudaginn 25. maí næstkomandi kl. 17:00 í stofu HT300 á Háskólatorgi. Á fundinum verða rædd mál á borð við baráttu ráðsins gegn gjaldskyldum bílastæðum við Háskóla Íslands, áframhald á verkefninu Frítt í strætó fyrir námsmenn, staða Lánasjóðssamninganna og ársskýrsla síðasta árs svo fátt eitt sé nefnt. Stúdentar eru minntir á að fundir Stúdentaráðs eru opnir öllum og því velkomið að mæta og kynna sér starfsemi ráðsins!

Viðburðir

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031