Háskólaráð er æðsta sella Háskóla Íslands þar sem aðalákvarðanatökuvaldið liggur. Í háskólaráði HÍ eiga sæti auk rektors tíu fulltrúar sem tilnefndir eru til tveggja ára í senn. Stúdentar eiga 2 fulltrúa í háskólaráði, þau Fannar Freyr Ívarsson, lögfræðistúdent (Margrét Arnardóttir er varamaður hans) og Guðrún Sóley Gestsdóttir, hagfræðistúdent (Boði Logason er varamaður hennar).
Ný lög gengu í gegn um opinbera háskóla árið 2008 og er skerpt á hlutverki háskólaráðs þar. Í 5. gr. laganna segir: „Stjórn háskóla er falin háskólaráði og rektor. Háskólaráð markar heildarstefnu í kennslu og rannsóknum og mótar skipulag háskóla. Háskólaráð fer með almennt eftirlit með starfsemi háskólans í heild, einstakra skóla og háskólastofnana og ber ábyrgð á því að háskóli starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli."
English:
University Council. The Student council has two representatives at the University Council which is the highest decision-making force at the University. They are Fannar Freyr Ívarsson and Guðrún Sóley Gestsdóttir.

