
Námslán eru greidd í gegnum LÍN, Lánasjóð íslenskra námsmanna og þægilegast er að sækja um þau í gegnum heimabanka á netinu.
Námslán miðast við 102.720 krónur á mánuði fyrir einstakling í leiguhúsnæði en mánaðarleg upphæð breytist eftir því hvort einstaklingur býr í heimahúsum eða hefur börn á sínu framfæri. 35% tekna námsmanns umfram 750.000 og eru lánin borguð út eftir hverja önn, um miðan janúar og um miðjan júní. Stúdentar þurfa að ná 20 (ECTS) einingum yfir skólaárið til þess að eiga rétt á útgreiddum námslánum. Allar frekari upplýsingar um LÍN og námslán má fá á heimasíðunni www.lin.is.
Á skrifstofu SHÍ starfar lánasjóðsfulltrúi sem aðstoðar samnemendur við allt sem viðkemur lánasjóðnum. Skólaárið 2011-2012 gegnir Heimir Hannesson því embætti.
English version:







