Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Réttindaskrifstofa SHÍ

Printer-friendly version

Vefsetur Réttindaskrifstofu stúdenta

myndRéttindaskrifstofa stúdenta hefur það hlutverk að aðstoða stúdenta í hvaða ágreiningsmálum sem upp kunna að koma innan HÍ og veita þeim ráðleggingar í framhaldinu hvernig þeir geta leitað réttar síns. Réttindaskrifstofan rekur réttindamál einstakra stúdenta sé þess óskað og gætir nafnleyndar þeirra nema að samþykki um annað liggi fyrir.

Allir stúdentar við HÍ sem telja að á réttindum sínum hafi verið brotið geta leitað til Réttindaskrifstofunnar.(Sjá yfirlit yfir réttindi og skyldur stúdenta við HÍ hér til hliðar.)

Hægt er að hafa samband í gegnum tölvupóst. Netfang skrifstofunnar er guk18@hi.is en þangað er hægt að senda fyrirspurnir og/eða óska eftir viðtalstímum. Aðsetur skrifstofunnar er á 3.hæð á Háskólatorgi, beint fyrir ofan Bóksölu stúdenta.

Ráðgjöf Réttindaskrifstofunnar er endurgjaldslaus.

Réttindaskrifstofan leitast ávallt við að svara spurningum stúdenta eftir bestu getu og leiðbeina þeim um næstu skref við lausn sinna mála. Aðstoðin kemur hins vegar ekki í staðinn fyrir lögfræðiaðstoð. Þeir sem leita til skrifstofunnar eru hvattir til að fylgjast vel með því að tímamörk kærufresta renni ekki út áður en nokkuð er aðhafst í málum þeirra.

– Stúdentaráð HÍ – 3.hæð Háskólatorgi (fyrir ofan Bóksölu stúdenta.) – sími: 570-0850

 

English version:


The Student rights office's role is to safeguard student rights within the academic community. The office offers counselling and other assistance in order for students to solve issues related to the academic community. The student ombudsman can, on request, act as a student's representative towards the university authorities and students' names will be undisclosed unless prior approval therein has been granted.

All students of the University of Iceland, that think their rights have been violated, can seek assistance from the office.

It is best to reach the ombudsman through email: guk18@hi.is. Students can send us a line or request an interview by emailing us.

The Student rights office assistance is free of charge.

The Student rights office always seeks to answer questions posed by students to its fullest aptitude and advice on the next steps towards a solution. Those who seek assistance are encouraged to watch the timelimits for appealing.

– Student council University of Iceland – 3.floor Háskólatorg (above the Student bookshop) – tel: 570-0850 

AttachmentSize
rettindaskra2003.pdf1.17 MB

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni