Roots & Shoots er alþjóðleg hreyfing ungmenna (á öllum aldri) sem vilja gera góða hluti fyrir samfélagið, dýrin og umhverfið. Hreyfingin var stofnuð árið 1991 af Dr. Jane Goodall sem er einn þekktasti líffræðingur samtímans. Hún var frumkvöðull í rannsóknum á simpönsum og hefur helgað líf sitt málefnum náttúru- og dýraverndar. Tugþúsundir ungmenna í yfir 100 löndum taka nú þátt í þessu alþjóðlega starfi þar sem þau skiptast á hugmyndum og vinna margvísleg verkefni sem stuðla að betri heimi. Verkefnin geta verið stór og smá, allt frá því að horfa saman á fræðslumynd með umræðum á eftir að stórum krefjandi verkefnum, fjáröflunum og herferðum.
Roots & Shoots við Háskóla Íslands var stofnað í janúar 2011 og við auglýsum hér með eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa með okkur. Allir geta komið með hugmyndir að viðfangsefnum. Endilega hafið samband!
Rannveig Magnúsdóttir
rootsnshoots.iceland@gmail.com
www.facebook.com/rootsnshoots.iceland
English version
Dr. Jane Goodall’s Roots & Shoots programme is about making positive change happen – for our communities, for animals and for the environment. With tens of thousands of young people in almost 100 countries, the Roots & Shoots network branches out across the globe, connecting youth of all ages who share a common desire to help make our world a better place. This powerful, youth-driven network fosters a fun, flexible and supportive environment where young people come together to share ideas and inspiration, implement successful community service projects and participate in special events and international campaigns.
Roots & Shoots at the University of Iceland was founded in January 2012 and we are recruiting people who wish to join us. Everyone can come up with project ideas. Please be in touch!
Rannveig Magnúsdóttir
