Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Skyn

Printer-friendly version

Skyn er hagsmunafélag stúdenta innan Háskóla Íslands með sértæka námsörðugleika að stríða. Félagið var stofnað í apríl 2007 og er hugsað sem heildar- og þverfagleg samtök í stað sértækra hagsmunafélaga sem voru áður starfrækt. Skyn vinnur í fjölmörgum verkefnum, en meðal þeirra eru umbætur á Uglunni. Einnig hafa fulltrúar hagsmunafélagsins staðið fyrir uppákomum á Háskólatorgi og munu halda því áfram.

Markmið félagsins eru eftirfarandi:

- Gefa lesblindum, ADHD og Tourette, og öllum þeim sem telja sig hafa sértæka námsörðugleika, tækifæri til að hittast, veita þeim stuðning og auka samheldni þeirra.

- Vera sýnilegt afl innan háskóla og í forsvari þegar málefni félagsins ber á góma. Beita sér fyrir réttindabaráttu félagsins innan og utan háskóla og vera þrýstihópur fyrir félagsmenn með málefni félagsins.

- Stuðla að aukinni fræðslu, kennslu, umræðu og rannsóknum um málefni hópanna innan sem flestra háskólagreina.

Áhugasömum um starfsemi félagsins er bent á að hafa samband í gegnum veffangið skyn@skyn.is eða einfaldlega skoða heimasíðu félagsins en slóðin er www.skyn.is.

 

English version:

Skyn is a interest society within the University which helps students with special learning difficulties. The association was established in April 2007 and is a interdisciplinary association which works in many various projects for students. Representatives of the association have also planned events at Háskólatorg and are planning to maintain that tradition.

Skyn gives students with dislexia, ADHD, tourette and other learning difficulties to meet up, organize meetings and give them support. Skyn fights for the rights of students with special learning difficulties and contributes to education, training, discussion and research within the University.

For further information please visit Skyn's webpage at www.skyn.is or contact Skyn via email: skyn@skyn.is.

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni