Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um Stúdentakort í Uglunni.
Leiðbeiningar:
- Farið inn á forsíðu Uglunnar:
- Smella á "Uglan mín", efst til vinstri
- Þá opnast um það bil 13 línkar og er neðsti línkurinn þar „Stúdentakort“.
- Þá koma upp nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig sækja eigi um kortið.
Stúdentakort eru gefin út í tveimur mismunandi útgáfum.
Annars vegar auðkennis- og afsláttakort og hins vegar rafrænt aðgangskort. Auk þess að vera auðkennis- og afsláttakort veitir rafrænt aðgangskort korthafa aukinn aðgang að byggingum Háskólans umfram venjulegan opnunartíma þeirra.
Stúdentakortið veitir afslátt m.a. í Hámu, veitingasölunni í Háskólatorgi. Nánari upplýsingar um þá afslætti.
Komi upp vandamál við umsókn um Stúdentakort hafðu samband við Þjónustuborðið Háskólatorgi, haskolatorg@hi.is. Afgreiðslutími er 8:30–18.
Vinsamlegast athugið að nemendur fá ekki nýtt Stúdentakort árlega heldur er það endurnýjuð með límmiða á Þjónustuborðinu Háskólatorgi.
English version:







