
Stúdentaráð er afar gegnsætt og þægilegt orð. Það þarf ekki nema eina andartakshugsun um orðið til þess að átta sig á því hvað það stendur fyrir. Stúdentaráð er samráðsvettvangur stúdenta og stofnað árið 1920. Það er skipað 20 stúdentum sem allir hafa tekið þá ágætu ákvörðun að reyna að bæta sinn hag og samstúdenta í leiðinni. Sumir tóku þá ákvörðun vegna einlægs áhuga á betra stúdentasamfélagi og heimi, aðrir vegna utanaðkomandi þrýstings og eflaust einhverjir með framapot helst í huga. Á þessu starfsári hafa fulltrúar frá Kennaraháskólanum og Íþróttbrautar á Laugarvatni setu- og tillögurétt á Stúdentaráðsfundum.
Stúdentaráð, Háskólatorgi sími: 5 700 850, netfang: shi@hi.is, opnunartími skrifstofu 8 - 16 alla virka daga.
Formaður Stúdentaráðs er Lilja Dögg Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri Stúdentaráðs er Baldur F. Ólafsson
Lánasjóðs- og hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs er Heimir Hannesson
Kosningar einu sinni á ári

Kosningar til Stúdentaráðs eru tvöfaldar framboðslistakosningar haldnar einu sinni snemma á hverju ári. Stúdentar sem ná kjöri sitja venjulega 2 ár í ráðinu og þannig helst reynsla og þekking inni á milli ára. Annað hvert ár er jafnframt kosið um fulltrúa stúdenta í háskólaráði og hitt annað hvert árið er kosið um fulltrúa til setu á háskólafundum. Öllum fylkingum innan Háskólans er frjálst að bjóða fram en þær fylkingar sem hafa lengi setið við kjötkatlana eru Vaka og Röskva.Í síðustu kosningum kom fram á sjónarsviðið ný fylking, Stúdentafélag hægrimanna. En Skrökva sem var ný árið áður bauð aftur fram.
Kosningarnar fóru þannig að Vaka hlaut hreinan meirihluta. Vaka hlaut 10 menn kosna í ráðið, Röskva 6 menn og Skrökva 2. Fyrir ári síðan var kosið til Háskólaráðs og hlaut Vaka og Rökva hvor um sig mann inn og sita þeir einnig í Stúdentaráði.
Stúdentaráðsfundir eru haldnir um það bil einu sinni í mánuði og eru þeir fundir haldnir fyrir opnum dyrum og eru allir áhugasamir stúdentar hvattir til að mæta.







