Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Um Stúdentasjóð

Printer-friendly version

Stúdentaráð hefur umsjón með Stúdentasjóði. Hlutverk Stúdentasjóðs er að styðja við menningar- og félagslíf í deildum skólans. Í þeim tilgangi veitir sjóðurinn fé til deildarfélaga, samtaka stúdenta og einstakra stúdenta. Stjórn sjóðsins er kosin árlega og er þannig skipuð að tveir fulltrúar eru kosnir af Stúdentaráði og þrír af formannafundi deildarfélaga.

Úthlutanir eru, skv. lögum sjóðsins, a.m.k. fjórar á hverju skólaári og eru úthlutanir sem og frestur til umsókna vel auglýstur í hvert sinn. Öll viðurkennd félög stúdenta við HÍ geta sótt fasta styrki úr sjóðnum við upphaf hvers skólaárs. Jafnframt eiga deildarfélög með fleiri en 15 félaga rétt á svokölluðum höfðatölustyrk og reiknast hann út eftir fjölda nemenda í faginu. Þeim sem ætla sér að sækja um styrk úr sjóðnum er bennt á að kynna sér lög sjóðsins sem og verklagsreglur stjórnar áður en þeir skila inn umsókn.

Stjórn Stúdentasjóðs 2010-2011

Margrét Arnardóttir (Röskva) - Formaður - maa14@hi.is 

Anna Elvíra Herrar Þórisdóttir (Vaka) - aeh11@hi.is

Davíð Ingi Magnússon (Orator) - Varaformaður - dim1@hi.is

Þórunn Ella Hauksdóttir (Katalogus) - thorunnella@gmail.com

Páll Ágúst Ólafsson (Fiskurinn) - pao4@hi.is

 

Lög Stúdentasjóðs

1. Nafn og hlutverk

1.1. Nafn sjóðsins er Stúdentasjóður og er hann í vörslu S.H.Í.

1.2. Hlutverk sjóðsins er aðallega tvíþætt:
a) Að efla félags-, fræðslu- og menningarstarfsemi stúdenta við Háskóla Íslands.
b) Að efla erlend samskipti stúdenta við Háskóla Íslands.

2. Stjórn sjóðsins

2.1. Fyrir 15. september skal skipa fimm fulltrúa í stjórn sjóðsins, til eins árs í senn og skal hún skipuð þannig.
a) Þrír fulltrúar nemendafélaga við HÍ skulu kosnir af samráðsfundi S.H.Í., sjá 50 gr.l.um S.H.Í.
b) Tveir fulltrúar skulu kosnir af S.H.Í., skv. 41.gr.l. um S.H.Í.

2.2. Fyrsta fund sjóðsstjórnar skal halda fyrir 1.október. Á fyrsta fundi sjóðsstjórnar, sem formaður S.H.Í kallar til, skal velja formann sjóðsins og varaformann, sem jafnframt er ritari stjórnar. Skulu þeir vera tveir af þeim fulltrúum sem kjörnir voru á samráðsfundi, sbr. gr. 2.1.a. Hlutverk formanns sjóðsstjórnar er að halda utan um starfsemi sjóðsins, skv. reglugerð þessari og verklagsreglum fyrir formann sjóðstjórnar..

2.3. Sjóðsstjórn skal halda fundargerðir.

2.4. Formaður S.H.Í, eða starfsmaður skrifstofu S.H.Í., þá í umboði formanns, skal sitja fundi stjórnar sem áheyrnarfulltrúi. Hann hefur ekki atkvæðisrétt. Að auki hefur áheyrnarfulltrúi skipaður af rektor, rétt til að sitja fundi nefndarinnar. Hann hefur ekki atkvæðisrétt.

2.5. Til þess að fundur verði löglegur þurfa a.m.k. 4 kjörnir fulltrúar að sitja hann. Ef atkvæði standa á jöfnu ræður atkvæði formanns, en atkvæði varaformanns að honum fjarstöddum.

2.6. Sjóðsstjórn skal setja sér vinnureglur í anda þessarar reglugerðar fyrir fyrstu úthlutun og skulu sömu vinnureglur gilda um allar úthlutanir á hverju ári. Þegar upp koma ófyrirséðar aðstæður getur stjórn S.H.Í. veitt undanþágu frá þessari reglu.

3. Fjármagn sjóðsins

3.1. S.H.Í ákvarðar fjármagn það sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunar árlega í samræmi við gr. 3.2.

3.2. Sjóðurinn skal hafa til ráðstöfunar það fjármagn sem Háskólaráð úthlutar honum ár hvert. Einnig má fjármagna hann með gjöfum og framlögum sem honum kunna að berast.

4. Úthlutunarreglur

4.1. Sjóðsstjórn skal úthluta styrkjum a.m.k. tvisvar á hvoru misseri. Fyrsta úthlutun skal fara fram fyrir 1.nóvember. Sjóðsstjórn skal auglýsa væntanlega úthlutun á tilkynningartöflum S.H.Í í hverri kennslubyggingu og í tölvupósti til allra stúdenta við H.Í.

4.2. Úthlutun skal fara fram eigi síðar en 2 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð þessari og vinnureglum sjóðsins skulu liggja frammi á skrifstofu S.H.Í. og vera aðgengilegar á heimasíðu S.H.Í. Á umsóknareyðublöðum skal sérstaklega vakin athygli umsækjenda á greinum 5.8-9 og greinum 6.1-6.4 Umsóknir skulu berast til skrifstofu S.H.Í. Umsóknaraðili, sem jafnframt er ábyrgðaraðili umsóknarinnar, ber ábyrgð á því að formlega sé tekið á móti umsókninni.

4.3. Umsóknum sem berast of seint sem og ófullnægjandi umsóknum verður sjálfkrafa vísað frá. Mögulegt er að leggja þær aftur fyrir við næstu úthlutun.

4.4. Sjóðsstjórn ber að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu umsóknar í tölvupósti. Þar skal einnig tilgreina fjárhæð styrks, hvar megi vitja hans og hvar megi nálgast útdrátt úr skýrslu sjóðstjórnar sbr. gr. 4.6..

4.5. Sjóðsstjórn ber sérstaklega að gæta þess að styrkþegar skili skýrslum skv. gr. 6.1.

4.6. Sjóðsstjórn skal, að lokinni hverri úthlutun, senda skrifstofu S.H.Í skriflega skýrslu um starf sitt. Í skýrslunni skal koma fram hverjum hafi verið úthlutaðir styrkir, hversu mikið og til hvaða verkefna. Jafnframt skal sjóðsstjórn birta útdrátt úr hverri skýrslu.

5. Hvað er styrkhæft.

5.1. Allir stúdentar við Háskóla Íslands geta sótt um styrk, í eigin nafni, eða í nafni félags innan Háskólans.

5.2. Einu sinni á hvoru misseri (vor og haust) skal úthluta svokölluðum föstum styrkjum. Hverju námsgreinafélagi (skorar-, deildar- eða fagfélagi), alþjóðlegu félagi sem stundar stúdentaskipti (vinnuskipti) og þverfaglegum hagsmuna- og menningarfélögum skal úthluta föstum styrkjum. Sækja þarf um þessa styrki sérstaklega. Félag sem er myndað af mörgum námsgreinafélögum getur ekki fengið fasta styrki. Fastir styrkir eru tvenns konar:
a) Félagsstyrkur. Styrkur sem er óháður fjölda félagsmanna. Sjóðsstjórn skal verja að lágmarki 10% af ráðstöfunarfé sjóðsins til þessarar styrkveitingar.
b) Höfðatölustyrkur. Styrkur sem miðast við fjölda félagsmanna. Einungis námsgreinafélög með 15 félaga eða fleiri eiga kost á slíkum styrk. Hann er reiknaður sem hér segir: X er 0,001% af þeirri upphæð sem rennur í sjóðinn. Þessa tölu skal endurskoða á ári hverju, sbr. einnig grein 7.2. Fyrir félög með fleiri en 15 og færri en 101 félaga verði styrkurinn félagafjöldi umfram 15 margfaldaður með X*3. Fyrir félög með 101 félaga eða fleiri og færri en 301 félaga verði styrkuriknn félagafjöldi umfram 100 margfaldaður með X*2. Þar ofan á bætist styrkur fyrir 100 manna félag. Fyrir félög með 301 félaga eða fleiri verði styrkurinn félagafjöldi umfram 300 margfaldaður með X*1. Þar ofan á bætist styrkur fyrir 300 manna félag.

5.3. Sérstyrkir: Hægt er að sækja um styrk fyrir því sem samræmist tilgangi og hlutverki sjóðsins, sbr. gr. 1.2.
Eftirfarandi flokkun er til leiðbeiningar.
a) Stúdentaskipti, þ.e.a.s. vinnuskipti stúdenta. Hafa skal til hliðsjónar ódýrasta fargjald á almennum markaði.
b) Erlent samstarf eða samstarf á milli nemenda skóla á háskólastigi innanlands þ.e.a.s. ráðstefnur, bein samskipti á milli félaga, eða vegna ferða til að koma á eða viðhalda slíku samstarfi. Miða skal við að veita tvo ferðastyrki til hverrar ferðar en heimilt er að veita þrjá styrki í sérstökum tilvikum.
c) Fræðandi og umræðuhvetjandi atburðir innan Háskólans, s.s. fundir, ráðstefnur og fyrirlestrahald, kennslumálaráðstefnur og annað það sem miðar að því að bæta háskólalífið. Afhenda skal stjórn Stúdentasjóðs eintak af auglýsingu og upplýsingar um staðsetningu, til staðfestingar áformunum.
d) Útgáfa blaða um fræðilegt efni, útgáfa til kynningar og útgáfa vefrita sem samræmast markmiðum og hlutverki sjóðsins. Afhenda skal stjórn Stúdentasjóðs eintak af útgefnu efni, til staðfestingar áformunum.
e) Skemmti- og menningarviðburðir, s.s. íþróttakeppni og leiksýningar. Skulu viðburðir þessir auglýstir á veggjum skólans og vera öllum stúdentum opnir. Afhenda skal stjórn Stúdentasjóðs eintak af auglýsingu og upplýsingar um staðsetningu til staðfestingar áformunum.

5.4. Ekki skal styrkja:
a) Beinar námsferðir,
b) Útgáfu í fjáröflunarskyni,
c) Atburði sem kostaðir eru alfarið af H.Í. eða öðrum aðilum,
d) Skemmti- og menningarviðburði sem hægt er að kosta að fullu með sanngjörnum aðgangseyri.

5.5. Miða skal við að styrkur til utanlandsfarar sé ekki hærri en sem nemur 60% af fargjaldi. Hafa skal til hliðsjónar ódýrasta fargjaldið á almennum markaði.

5.6. Miða skal við að sú upphæð sem varið er í lið 5.3.a. og 5.3.b fari ekki yfir 30% af heildarútgjöldum sjóðsins.

5.7. Sé styrkur ekki sóttur innan 6 mánaða telst hann þar með niðurfallinn, enda hafi styrkþega verið eða mátt vera kunnugt um að beiðni hans hafi verið tekin til greina.

5.8. Sjóðstjórn er heimilt að veita styrki fyrir afmörkuðum hluta atburðar/verkefnis/ferðar sem sótt er um styrk fyrir.

5.9. Úrskurðir sjóðsstjórnar eru fullnaðarúrskurðir.

6. Skyldur styrkþega.

6.1. Styrkþegi skal skila skriflegri skýrslu til sjóðsstjórnar eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að styrkur var nýttur, ferð var farin, fundur haldinn, útgáfa átti sér stað, o.s.frv., ef upphæð styrksins nemur meira en 30.000 kr.

6.2. Skili styrkþegi ekki skýrslu skv. gr. 6.1. er styrkurinn afturkræfur. Sjóðsstjórn er einnig heimilt að vísa frá umsóknum þeirra aðila sem ekki hafa staðið skil á skýrslum, skv. áðurnefndri gr. 6.1.

6.3. Í umsókn um styrk skal umsækjandi tilgreina aðra styrki sem fengist hafa til sama atburðar/verkefnis/ferðar.

6.4. Komi í ljós að upplýsingar í umsókn sem máli skipta við úthlutun voru villandi eða þeim verulega ábótavant er styrkurinn afturkræfur. Styrkþegi, eða forsvarsmaður viðkomandi félags, er ábyrgðamaður umsóknarinnar. Ef kalla þarf aftur inn styrk, t.d. vegna þess að hann var ekki nýttur, er hann innheimtur hjá ábyrgðamanni umsóknarinnar.

6.5. Félag sem sækir um fastan styrk sbr. 5.2. skal skila með umsókn sinni lögum félagsins með tilgangi og markmiði og lauslegri áætlun um starf félagsins á komandi vetri. Námsgreinafélag sem sækir um höfðatölustyrk á seinna misseri sbr. gr. 5.2.b. skal skila með umsókn sinni skýrslu þar sem gerð er grein fyrir ráðstöfun höfðatölustyrksins sem félagið fékk á fyrra misseri. Ef skýrslu er ekki skilað, eða ráðstöfun styrksins samræmist ekki grundvallarmarkmiðum sjóðsins sbr. gr. 1.2. er sjóðsstjórn heimilt að hafna umsókninni.

7. Gildistaka, bráðabirgðaákvæði og annað.

7.1. Sjóðsstjórn skal að loknu hverju kjörtímabili og eigi síðar en 1. júlí senda S.H.Í skriflega skýrslu um starf sitt og skulu þar koma fram athugasemdir ef einhvejrar eru á reglugerð þessari.

7.2. S.H.Í skal endurskoða reglugerð þessa á eins árs fresti.

7.3. Reglugerð þessi tekur nú þegar gildi og falla þá eldri reglugerðir um Stúdentasjóð úr gildi.

Samþykkt 12. október 2005 af Stúdentaráði Háskóla Íslands

Verklagsreglur Stjórnar

I. Almennar athugasemdir

1. Stjórnarmenn hafa ekki atkvæðisrétt um umsókn þar sem þeir eiga hagsmuna að gæta. Það nægir jafnframt að einn stjórnarmanna fari fram á að annar víki af fundi í slíku tilfelli. Fundur ákvarðar um vanhæfi.

2. Ekki er hægt að sækja um styrk vegna atburðar á síðasta skólaári. Fastir styrkir og höfðatölustyrkir hlaupa ekki á milli anna. Hægt er að sækja um aðra styrki milli úthlutana.

3. Varanlegar fjárfestingar eru ekki styrkhæfar.

4. Almenn tilmæli til umsækjenda:
i) Nota skal umsóknareyðublöð og fylla út í viðeigandi reit, en láta allar nánari upplýsingar fylgja með á sérmerktum fylgiskjölum.
ii) Umsækjendur skulu vélrita eða tölvuvinna fylgiskjöl.
iii) Sjóðsstjórn lítur svo á að umsóknir verði að réttlæta úthlutanir. Farið verður eftir þeim upplýsingum sem fylgja umsókn.
iv) Sérhvern styrk skal sækja um á sér umsóknareyðublaði.
v) Styrkþegar sem fá höfðatölustyrk njóta aðhalds frá sjóðsstjórninni, eins og kveðið er á um í gr. 6.4. Þannig má koma í veg fyrir að hærri höfðatölustyrkur leiði til verri nýtingar fjármuna.

II. Athugasemdir við einstakar greinar reglugerðar um Stúdentasjóð

1. Varðandi grein 4.4
Skilafrestur telst til kl 16:00 á auglýstum degi umsóknarfrestar. Berist umsókn seinna verður hún ekki tekin til greina.

2. Í gr. 5.2. er skorið úr um það hvort fagfélög innan skorar eigi rétt á föstum styrk. Einnig er skorið úr um það hvort yfirfélög, þ.e. félög félaga, eigi rétt á styrk, en það skulu þau ekki hafa, enda óeðlilegt að sama félagið geti fengið styrk sem sjálfstætt félag sem og aðili að öðru félagi.

3. Varðandi grein 5.3 a) og b)
Miða skal við að hver styrkþegi hljóti að hámarki 50.000 kr. í styrk.

4. Varðandi gr. 5.3. b):
i) Veita má styrki á einn aðalfund og tvo vinnufundi á ári.
ii) Miða skal við að félag fái ekki yfir 160.000 kr. í styrk á ári, nema sérstakar ástæður séu til.
iii) Styrkþegi skal sýna fram á þátttöku á ráðstefnu, eða þeim atburði sem styrkurinn er veittur til. Það skal gera með stuttri greinagerð um ferðina eða leggja fram önnur gögn henni til staðfestingar.

5. Varðandi gr. 5.3. c) og e):
i). Húsnæðiskostnaður vegna fundahalda er ekki styrktur, nema sýnt hafi verið fram á að ekki hafi verið unnt að halda fundinn í húsakynnum HÍ, félagi að kostnaðarlausu.
ii). Kostnaður vegna veitinga á fundum er ekki styrktur.
iii). Fram skal tekið, að ekki er ætlunin að sjóðurinn styrki atburði sem halda má fram með gildum rökum og tilvísunum í þær hefðir sem við lýði eru, að háskólanum beri skylda til að kosta að fullu.
iv). Rútuferðir eru ekki styrktar.

6. Varðandi gr. 5.3. d):
Útgáfu blaða er skipt í fjóra flokka, og má veita hverju félagi einn styrk fyrir hvern flokk á hverju misseri. Skilyrði er að ekki sé hagnaður af útgáfu. Einungis skal styrkja beinan kostnað vegna útgáfu s.s. prentun. Ekki er veittur styrkur fyrir launakostnaði og launatengdum gjöldum.
1. flokkur. Skilyrði; a.m.k. 20 blaðsíður af fræðilegu efni miðað við A4 brot. Regluleg útgáfa. Styrkur allt að 50.000 krónur.
2. flokkur. Blöð um fræðilegt efni sem falla ekki í 1. flokk. Styrkur allt að 25.000 kr.
3. flokkur. Kynningarefni t.d. vegna ráðstefnuhalds. Styrkur allt að 25.000 kr.
4. flokkur. Vefrit/heimasíða. Styrkur allt að 25.000 kr.

7. Varðandi gr. 5.5.:

i) Styrkur til utanlandsfara er allt að 60% af fargjaldi á áfangastað og heim aftur.
ii) Í gr. 5.5. er gert ráð fyrir að styrkir til utanlandsfarar verði ekki meira en 60% af upphæð farmiðans. Í langflestum tilvikum, sérstaklega ef um mikilvægar utanlandsferðir er að ræða, ætti félag eða einstaklingur að vera í stakk búinn að útvega það fjármagn sem upp á vantar.

8. Umsækjanda er skylt að láta sjóðstjórn vita af öllum breytingum sem varða umsóknina sem lúta beint að greinum 6.3 og 6.4 komi þær upp eftir að umsókn hefur verið skilað.

Þessar vinnureglur voru samþykktar af stjórn Stúdentasjóðs þann 18. október 2005.

--English version

About the Student Fund

The Student Council of the University of Iceland oversees the Student  Fund. The Student Fund’s role is to aid the cultural and social life  within departments of the University. The Student Fund donates  financial support to departmental societies, student associations and students. The board of the Student Fund is elected every year, 2  members are elected by the Student Council and 3 by presidential  meetings of departmental societies.

The Student Fund donates finances at least 4 times a year and it is  very well advertised each time. All student associations at the  University can apply for a grant at the beginning of each school  year. Faculty societies with more than 15 members can apply for a  grant which is connected to the number of students studying a  specific subject. Those who want to apply are advised to look at the  Student Fund statutes and work method rules of the board before they send an application.

The board of the Student Fund 2010-2011

Margrét Arnardóttir (Röskva) - Chairperson - maa14@hi.is 

Anna Elvíra Herrar Þórisdóttir (Vaka) - aeh11@hi.is

Davíð Ingi Magnússon (Orator) - Vice-chairperson - dim1@hi.is

Þórunn Ella Hauksdóttir (Katalogus) - thorunnella@gmail.com

Páll Ágúst Ólafsson (Fiskurinn) - pao4@hi.is

 

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Soffía er nemendafélag heimspekinema.  Soffía merkir viska.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...