

Vísindaferð er mjög ógagnsætt orð. Ferðin kemur vísindum ekki neitt við og ætti í raun frekar að vera kölluð skemmtiferð.
Nemendafélög Háskóla Íslands sjá um að skipuleggja sem flestar vísindaferðir fyrir stúdenta síns félags, sem eru vanalega farnar öll föstudagseftirmiðddegi og standa fram eftir kvöldi.
Ykkur til ánægju og yndisauka látum við skilgreiningu Vísindavefsins á fyrirbærinu fljóta með.
Okkar skilgreining er hins vegar eftirfarandi:
Vísindaferðir ganga þannig fyrir sig að rútur sækja nemendur í heimabyggingu þeirra á háskólasvæðinu og keyra í eitthvert fyrirtæki eða stofnun sem tekur á móti þeim. Oft tengjast þeir aðilar eða fyrirtæki sem bjóða til vísindaferðar þeirri námsgrein sem stúdentarnir leggja stund á. Til dæmis er algengt að nemendur í hagfræði sæki Seðlabankann heim, náttúru- og líffræðinemar lenda yfirleitt í heimboði hjá Náttúruvísindastofnunum og guðfræðinemar í vel völdum kapellum og kirkjum. Í vísindaferðu bjóða viðkomandi stofnanir eða fyrirtæki upp á fyrirlestur um starfsemi þar á bæ og helstu viðfangsefni, léttar veitingar og veigar. Síðan er gefið rúm fyrir spurningar sem nemendur kunna að hafa og þar á eftir tekur gleðin vanalega völd, rútur ná í stúdenta og aka þeim í miðbæ Reykjavíkur eða heimahús.
English version
Science-trips are a well known tradition at the University all though the name says nothing about it's meaning. Students go to science-trips almost every Friday, buses pick them up at the University and drive them to different companies which present their work and offer the students refreshments and drinks. After the presentations students meet downtown and have a mighty fine time.