Nemendur í MA- námi í blaða- og fréttamennsku afla og skrifa fréttir fyrir student.is
Blaða og fréttamennska er tveggja ára verklegt og fræðilegt framhaldsnám í blaða og fréttamennsku í félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Námið telst fullgilt MA-próf. Inntökuskilyrði eru BA-, BS- eða sambærilegt próf.
Náminu er ætlað að búa nemendur undir fjölbreytt störf á margskonar fjölmiðlum. Áhersla er lögð á að kenna nemendum vinnubrögð og aðferðir sem blaða- og fréttamenn nota við vinnu sína og að beita þeim tækjum og tólum sem henta hverjum miðli fyrir sig.
Einnig að efla þekkingu þeirra á íslensku samfélagi og innviðum þess.
Nemendur eru þjálfaðir í að skrifa fréttir, greinar og viðtöl fyrir blöð, vefmiðla, útvarp og sjónvarp. Þeir ritstýra student.is undir handleiðslu kennara, afla frétta fyrir vefinn og vinna sem texta, útvarps- eða sjónvarpsefni.
Umsjónarmaður MA náms í blaða og fréttamennsku er Valgerður Jóhannsdóttir (vaj@hi.is), en hún hefur meira en 20 ára starfsreynslu í fjölmiðlum, blöðum, útvarpi og sjónvarpi.
Auk Valgerðar og annarra fastra kennara úr félags- og mannvísindadeild sinna reyndir fjölmiðlamenn stundakennslu hver á sínu sérsviði og má þar nefna sjónvarpsmennina Þorstein J. Vilhjálmsson og Karl Ágúst Úlfsson, Friðrik Þór Guðmundsson blaðamann og Guðmund Hermannsson ritstjóra mbl.is.
Stjórn námsins skipa:
- Ólafur Þ. Harðarson, Ph. D, prófessor
- Ólafur Þ. Stephensen, M.Sc. blaðamaður
- Þorbjörn Broddason, fil.dr. prófessor

