Þeir sem skrifa fréttir fyrir student.is kappkosta að gera það í anda góðrar blaða- og fréttamennsku og í samræmi við siðareglur blaðamanna.
Í því felst að fréttir á vefnum eiga að vera áreiðanlegar og nákvæmar. Fréttamönnum vefsins ber að vanda upplýsingaöflun, úrvinnslu og framsetningu frétta. Einnig ber þeim að gæta sanngirni og óhlutdrægni og leita upplýsinga frá báðum eða öllum aðilum máls.
Þeir mega ekki mismuna eða hvetja til fordóma, til dæmis á grundvelli kynþáttar, kynferðis, þjóðernis eða trúarbragða.
Fréttamönnum student.is ber einnig að vanda mál sitt og flytja efni á góðri íslensku.
Ranghermi verður leiðrétt undanbragðalaust og leiðrétting birt svo fljótt sem verða má.
