Málfar og stíll
Ætlast er til að nemendur skrifi góða íslensku og styðjist alfarið við íslenskt málfar og reglur. Texti skal vera skrifaður í vefvænum stíl, þ.e. skrifaður í stuttum málsgreinum með áberandi fyrirsögnum.
Vefstjóri
Vefstjóri er starfsmaður Markaðs- og samskiptasviðs.
Vefstjóri ber ábyrgð á að þróa verklagsreglur og kynna þær fyrir nemendum.
Innihald
Vefnum er ætlað að miðla því sem nemendur Háskóla Íslands þurfa að vita um skólann, samfélagið í heild og félagslífið.
- Gæta skal samræmis í öllum upplýsingum og framsetningu á upplýsingum á vefnum.
- Upplýsingar um sama efni á ekki að þurfa taka fram oft, heldur skal leitast við að tengja síðurnar á milli svo að sömu upplýsingarnar séu ekki margskráðar.
- Setja skal allar upplýsingar fram á vönduðu og hnitmiðuðu máli. Stuttar málsgreinar þar sem fyrirsagnir og millifyrirsagnir eru notaðar títt.
- Tenglar skulu vera settir inn yfir orðið sjálft en ekki á að skrifa t.d. http://www.student.is Ekki á heldur að setja tengilinn aftast í orðinu hér.
- Merkja skal þegar pdf skjöl eru sett inn (pdf) fyrir aftan.
- Allar myndir sem fara inn á vefinn eiga að vera 72 px og hæð og breidd miðast við 200x200.
- Allar síður eiga að hafa fyrirsögn sem er lýsandi fyrir síðuna í heild sinni og mega þær ekki vera lengri en ein lína, miðað er við hálfa línu.
Skipulag vefsins
Vefurinn á að vera þannig upp byggður að notandinn viti hverju sinni hvar hann er staddur og á það að vera merkt með brauðmolaslóð.
Hafa þarf í huga að framsetning efnisins sé í samræmi við vinnureglur um aðgengi fatlaðar og þarf að haga framsetningu þannig að það sé aðgengilegt fyrir alla notendur.
Útlit
Stúdentavefurinn styðst við útlit vefs Háskóla Ísland. Haus síðunnar er í samræmi við hausinn á Háskólasíðunni, þ.e. merki Háskóla Íslands á að vera efst til vinstri og tengil á vísindavefinn efst til hægri. Öllu þar fyrir neðan er hægt að breyta í samstarfi við þá sem koma að vefnum.
Notast skal við fyrirfram skilgreint letur og fyrirsagnastærð til þess að allar síður séu í samræmi.
